49 þúsund konur á Íslandi hafa skráð sig á fésbókarsíðu sem stofnuð var af Þórunni Antoníu Magnúsdóttur, söngkonu með það að markmiði að breyta umræðuhefðinni á meðal kvenna.
Ljóst er, miðað við hraðann á söfnun undirskrifta að listinn fer yfir 50 þúsund nöfn í dag, en stofnað var til síðunnar aðfaranótt laugardags.
Með fésbókarsíðunni er verið að \"hvetja til vitundarvakningu um hvernig konur tala um aðrar konur svona almennt séð,\" eins og segir þar: \"Við eigum að vera systur og standa saman og sýna litlum og stórum konum fordæmi með því,\" segir þar einnig.
Og tónninn er tær og fagur: \"Konur sem tala fallega um aðrar konur eru öruggar, sterkar og fallegar. Slæmt umtal um aðra er ekki gjaldmiðill í samskiptum. Breiðum út boðskapinn til allra kvenna sem ykkur þykir vænt um og ekki vænt um líka.\"