Glúmur starfaði við fiskeldi og segir Vestfirðinga „þræla“ norskra milljarðamæringa

Glúmur Baldvinsson, oddviti Frjálslynda lýðræðisflokksins, segir að það hafi verið „dauður fiskur út um allt“ þegar hann starfaði við fiskeldi í Arnarfirði um nokkurra mánaða skeið. Ljóst er að flokkurinn tekur harða afstöðu gegn fiskeldi í íslenskum fjörðum.

„Dauður fiskur útum allt. Það var kallað að taka dauðann. Það var helsta verkefnið. Og því vil ég vekja athygli á því að Matvælastofnun MAST er einvörðungu þræll og þjónn norskra milljarðamæringa sem græða milljarða á því að arðræna íslenska og vestfirska firði,“ segir Glúmur í harðorðri færslu á Facebook. Hann segir að „litla kalla“ í þorpum á Vestfjörðum vera „þræla“:

„Og þrælarnir og þjónarnir eru ekki bara MAST heldur litlu kallarnir í litlu þorpunum sem þiggja lítil völd og litla peninga fyrir þjónustu sína. Norðmennirnir eiga þetta og litlu Vestfirðingarnir eru þeirra. Þrælar. Sálin seld. Að vanda.”

Guðmundur Franklín Jónsson, formaður flokksins, tekur undir með honum og segir:

„Hárrétt hjá þér Glúmur og þetta byrjaði allt með undirlægjuhætti aðfluttra gráðugra vesalinga sem seldu burtu og stálu kvóta Vestfirðinga sem síðan þá hafa fengið skammtað ölmusu úr hnefa sömu manna.“