Glúmur safnar í her og ætlar að taka Reykjavíkurborg

Glúmur Baldvinsson, sem skipaði oddvitasæti á lista Frjálslynda lýðræðsflokksins, hyggst safna her fólks til að ná inn í borgarstjórn Reykjavíkur næsta vor.

Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn náði ekki inn manni í Alþingiskosningunum liðna helgi, á flokkurinn nú Íslandsmetið í fæstum atkvæðum fyrir flokk á landsvísu. Glúmur ætlar ekki að láta það á sig fá og hefur gefið út yfirlýsingu um hann ætli sér stóra hluti í borgarstjórnarkosningunum sem fara fram í maí á næsta ári.

„Kæru vinir, tíminn líður hratt og því þarf að hefja undirbúning fyrir orrustuna um Reykjavíkurborg hið fyrsta,“ segir Glúmur á Facebook.

„Í bígerð er að stofna flokk sem mun kallast Flokkurinn (enn þá bara vinnunafn, hann má kallast allt annað enda ákveðið af flokksmönnum).“

Samkvæmt Glúm verður stefnan að berjast gegn réttrúnaði, skorti á húsnæði fyrir lítt efnað fólk og ungt fólk, sóun á almannafé borgarbúa og síðast en ekki síst að hefja viðspyrnu gegn hugmyndum um að útrýma einkabílnum.

„Í því ljósi bið ég alla þá sem vilja fylgja okkur að málum að ganga til liðs við okkur. Við stofnun flokksins verð ég enginn einræðisherra heldur söfnum við liði og kjósum fólk og forystumenn með lýðræðislegum hætti.“

Hann telur upp fimm atriði sem þarf til:

„1. Góða stefnu, 2. Her fólks sem er tilbúið að berjast fyrir málstaðnum, 3. Peninga sem þarf að safna, 4. Aga og skipulagningu og 5. Bestu kandídatana.“

Hann bætir svo við:

„Ég tek það fram að þetta er aðskilnaður minn við Frjálslynda lýðræðisflokkinn. Nú er þetta á mínum forsendum sem ég stofna flokkinn en ég ætlast ekki til að verða formaður eða leiðtogi. Um það kjósum við,“ segir hann. „Ég óska sérstaklega eftir að fá til liðs við flokkinn þá karlmenn sem hafa verið kúgaðir af femínisma.“