Glötuðu 4 milljörðum - hækka laun 87%

Það er þyngra en tárum taki að aðilar vinnumarkaðarins sem fara með sameiginlega stjórn lífeyrissjóðanna skuli ætlast til þess að almennu verkafólki skuli vera gert að fara eftir samræmdri launastefnu sem kveður á um 11,4% launahækkun í þriggja ára samningi en tryggja svo sjálfum sér launahækkun á sama tímabili sem nemur 87% sem er 77% meira en samið var um handa verkafólki. Þetta kemur fram í pistli á síðu Verkalýðsfélags Akraness, sem formaður félagsins Vilhjálmur Birgisson skrifar og er mjög illur vegna einkum stórhækkunar hjá stjórnarmönnum Stapa.


Í pistli Vilhjálms er rifjað upp að gengið var frá kjarasamningum á hinum almenna vinnumarkaði þann 5. maí 2011 undir heitinu „samræmd launastefna“.  Í þessum kjarasamningum skuldbundu Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög Alþýðusambands Íslands, að undanskildu Verkalýðsfélagi Akraness, sig til þess að ganga frá öllum sínum kjarasamningum á þeim nótum að launahækkanir yrðu ekki hærri en 11,4% í þriggja ára samningi.

 Verkalýðsfélag Akraness gagnrýndi þessa samræmdu launastefnu harðlega á grundvelli þess að um 70% félagsmanna félagsins tilheyra fyrirtækjum sem eru starfandi í útflutningi og hafa því verið að hagnast umtalsvert m.a. vegna gengisfalls krónunnar. Verkalýðsfélag Akraness fékk eftir því sem fram kemur í pistlinum á heimasíðu félagsins bágt fyrir þá afstöðu sína að vilja ekki taka þátt í þessari samræmdu launastefnu sem ASÍ og SA gengu frá. \"Það var algerlega ótrúlegt að forysta ASÍ skuli hafa lagst gegn því að nýta þetta tækifæri til verulegra launahækkana eins og t.d. handa fiskvinnslufólki og öðrum sem störfuðu hjá útflutningsfyrirtækjum en þessi fyrirtæki voru að hagnast eins og enginn væri morgundagurinn.\"

Nú hafi komið á daginn a launastefnan hafi miðast við að halda launum verkafólks niðri en hinir fleyti rjómann

\"Það liggur fyrir að stjórnarlaun t.d. í lífeyrissjóðnum Stapa voru hækkuð fyrir nokkrum dögum síðan um 87%, já takið eftir, um 87% og það skrautlega í þessu var að þetta var tillaga sem fulltrúar atvinnurekenda í lífeyrissjóðnum lögðu fram, en atvinnurekendur fara með 50% atkvæða á aðalfundum sjóðanna. Rétt er að geta þess að Stapi er alls ekki eini lífeyrissjóðurinn sem hefur hækkað stjórnarlaun umtalsvert frá árinu 2011 og nægir að nefna lífeyrissjóð Verslunarmanna sem hefur hækkað sín stjórnarlaun um 51% og lífeyrissjóðinn Gildi sem hefur hækkað sín stjórnarlaun um 36%,\" segir í hinum harðorða pistli á heimasíðu Verkalýðsfélags Akraness.

\"Rétt er að rifja upp í ljósi mikillar „ábyrgðar“ að Stapi lífeyrissjóður sem hækkaði stjórnarlaun sín um 87% þurfti að afskrifa t.d. 4 milljarða og það bara vegna þess að lögmenn sjóðsins gleymdu að lýsa kröfu í þrotabú Straums árið 2009,\" skrifar Vilhjálmur.


Formaður Verkalýðsfélags Akraness vill taka það skýrt fram að auðvitað eigi fólk að fá sem mestar launahækkanir, en það eigi ekki að gilda bara fyrir sérhagsmunaelítuna, það eigi að gilda fyrir alla. \"En stór hluti þeirra sem sömdu samræmdu launastefnuna sem kvað á um einungis 11,4% launahækkun til handa verkafólki er núna að skammta sér launahækkun fyrir stjórnarsetu í lífeyrissjóðum sem nemur eins og áður sagði tugum prósenta umfram samræmdu launastefnuna og við slíku segir formaður VLFA: algjör hræsni,\" endar Vilhjálmur Birgisson pistill sinn.

Stapi er  lífeyrissjóður með höfuðstöðvar á Akureyri. Samkvæmt því sem fram kemur á heimasíðu félagsins eru eftirfarandi í stjórn Stapa: Þórarinn Sverrisson formaður, Huld Aðalbjarnardóttir, Húsavík, Sverrir Már Albertsson, Eskifirði, Tryggvi Jóhannsson, Akureyri, Ágúst Torfi Hauksson, Akureyri (varaformaður), Erla Jónsdóttir Kambakoti, Kristín Halldórsdóttir, Akureyri og Unnur Haraldsdóttir, Hvammtanga.