Loksins glittir í tveggja stafa hitatölur á landinu þegar líður á þessa þriðju viku sumars, en raunar verður næturfrost fram í miðja vikuna, en þá breytist veðurlagið með suðaustanátt og rigningu.
Það er ekkert sérstaklega algengt að íbúar suðvesturhornsins kalli eftir rigningu og bleytutíð, en vissulega eru þeir orðnir þreyttir og viðvarandi þurrkum frá því um miðjan apríl með öllum sínum fylgikvillum, slæmum loftgæðum og rykugu og skítugu umhverfi. Þá hefur þurrakuldinn haldið aftur af öllum gróðri sem hefur lítinn sem engan áhuga á að vakna af sínu móki við svona aðstæður.
Búast má við éljagangi norðaustanlands í dag og á morgun, en svo linnir því og sömuleiðis blessuðu næturfrostinu og gæti hitinn hæglega farið í tólf gráður þegar líða tekur á vikuna. Má búast við besta sumarveðrinu þar sem þörfin er hvað mest, um norðaustanvert landið en þar er víða snjór yfir jörð, allt frá fjöllum niður í byggð.