„Meðalframlag á hvern háskólanema í ríkjum OECD er um þriðjungi hærra en á Íslandi og framlög á Norðurlöndum að meðaltali tvöföld á við það sem gerist hér,“ skrifar Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands í Fréttablaðið í dag.
Tilefnið er fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. „Háskóli Íslands er afar vel rekin stofnun og hefur með ráðdeild tekist að halda rekstrinum í jafnvægi um árabil. Þrátt fyrir mikið aðhald er í ár í fyrsta sinn gert ráð fyrir 300 m.kr. rekstrarhalla. Við það verður ekki unað lengur. Ef ekki á að stefna uppbyggingarstarfi Háskóla Íslands í voða er komið að því að stjórnvöld láti verkin tala,“ skrifar rektor.
Jón Atli segir Háskóa Íslands njóta mikils trausts hjá íslenskum almenningi. „...og við sem þar störfum höfum bundið miklar vonir við að stjórnvöld taki höndum saman með okkur í þeirri sókn sem framundan er. Allir hagvísar benda til þess að bjart sé fram undan og það eru því gífurleg vonbrigði að í nýsamþykktri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir næstu ár eru háskólarnir í landinu skildir eftir við nauðsynlega uppbyggingu innviða íslensks samfélags.“