Glenn frey úr eagles látinn

Bandaríska tónlistargoðsögnin Glenn Frey, einn stofnanda Eagles lést í gær eftir að hafa glímt við lungnabólgu og gigt um nokkurt skeið. Hann var 67 ára.

Frey er á meðal áhrifamestu tónlistarmanna rokkssögunnar, en smellirnir sem hann samdi ásamt félaga sínum í Eagles, Don Henley, eru á meðal rómuðustu laga áttunda áratugarins þegar þessi ofurgrúppa var upp á sitt besta - og nægir þar að nefna lög á borð Lyin Eyes og Hotel California.

Frey kom hingað til lands ásamt félögum sínum í Eagles vorið 2011 og lék fyrir fullri Laugardalshöll.