Karl Eskil Pálsson, fyrrum fréttamaður RÚV og núverandi upplýsingafulltrúi Samherja, lenti í miður skemmtilegu atviki þegar hann var viðstaddur við sýningu Íslensku óperunnar þar sem La traviata var flutt í Hofi á Akureyri.
Hann deilir reynslu sinni á Facebook-síðu sinni.
Karl Eskil segir sýninguna sennilega hápunkt menningarlífsins á Akureyri. Uppselt hafi verið á sýninguna og allir gestir mættir prúðbúnir um það bil klukkustund fyrir sýningu.
Guðni Tómasson, tónlistaráhugamaður og dagskrárgerðarmaður á Rás 1, var mættur til að segja frá verkinu og sköpun þess fyrir sýningu. Að sögn Karls Eskils var veitingastaðurinn þéttskipaður af fólki sem vildi fræðast um verkið.
Hins vegar á sama tíma hafi fólk sem tengdist sýningunni verið með gleðskap á pallinum fyrir ofan veitingastaðinn. Þar hafi verið kátt á hjalla á pallinum sem Karli Eskil fannst vera mjög truflandi fyrir frásögn Guðna.
Karl Eskill spyr í færslu sinni hvers vegna það hafi verið nauðsynlegt að safnast saman á pallinum á þessum tíma. Hann segir fólkið á neðri hæðinni ekki sátt.
„Kannski var Hofi slétt sama, gestir voru búnir að borga fyrir þessa annars frábæru sýningu,“ segir Karl Eskill í lok færslu sinnar og bendir á að sýningin hafi engu að síður verið frábær.