Eva María Þórarinsdóttir Lange og Ásta Kristín Benediktsdóttir, frá Hinsegin dögum, verða meðal gesta í Þjóðbraut í kvöld. Hinsegin dagar eru í algleymi þessa vikuna og enda með gleðigöngunni á laugardaginn.
Gleðigangan er einnig þakkarganga þar sem hinsegin fólk þakkar fyrir að múrar hafi brotnað og réttara stað þess sé nú allt önnur en áður var.
Þær segjast mjög glaðar með að Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, muni heiðra gleðigönguna með nærveru sinni. Þær segja það styrkja gönguna og tilganginn með henni, ekki síst muni það vekja mikla athygli utan Íslands.