Glæpamennska lögreglu: ný handtaka

Lögregla handtók í gær karlmann um fertugt í tengslum við rannsókn ríkissaksóknara á meintum brotum lögreglumanns, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi frá 29. desember.

Frá þessu greinir Ríkisútvarpið.

Fram kemur hjá Rúv að hinn handtekni hafi hlotið dóm fyrir fíkniefnalagabrot, en ekki liggi fyrir á þessari stundu hvort krafist verði gæsluvarðhalds yfir honum.

Rannsókn málsins beinist samkvæmt heimildum Hringbrautar að meintum ólöglegum samskiptum við brotamenn.

Gæsluvarðhald yfir hinum lögreglumanninum, sem er nálægt fimmtugu, rennur út á föstudag en hann hefur setið í einangrun.