Team Spark, kappaksturslið frá Háskóla Íslands hefur hannað og smíðað rafknúinn kappakstursbíl fyrir stærstu alþjóðlegu verkfræðinemakeppni í heimi, Formula Student. Sigríður Borghildur Jónsdóttir, liðstjóri Team Spark, segir að markmiðið hafi verið að smíða sem bestan bíl á sem skemmstum tíma. “Markmiðið að klára bílinn nógu snemma tókst svo nú stefnum við að næsta markmiði sem er að keyra bílinn 100km á Íslandi áður en við keppum úti á Bretlandi og Ítalíu. Það er gert svo við náum að þjálfa ökumenn og fínstilla alla eiginleika.”
Spennandi nýjung er að liðið er að þróa vængi á bílinn eða svokallaða spoilera og segir Sigríður það hafa gengið vonum framar.
Spennandi tímar eru framundan hjá liðinu sem stefnir hátt í sumar á Silverstone brautinni í Bretlandi. Sigríður segir að í ár ætli liðið einnig að keppa í Ítalíu og fá betri keppnisreynslu. Hún hvetur alla til að fylgjast með Team Spark á facebook (https://www.facebook.com/TeamSparkEngineering/) og snapchat (team.spark) en þangað koma inn helstu upplýsingar um stöðu og gengi.