Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti á blaðamannafundi í morgun breytta framsetningu álagningar opinberra gjalda sem birt verður í vikunni, þar sem markmiðið er að upplýsingar séu aðgengilegar og notendavænar.
Álagning skatta og opinberra gjalda sem birtist 31. maí 2018 felur í sér gjörbreytta framsetningu þar sem auðvelt er að nálgast niðurstöður álagningarinnar á stafrænan máta, hlutfall skatta af skattstofni og skiptingu skattgreiðslna milli sveitarfélags greiðanda og ríkissjóðs.
Stutt skýringarmyndbönd má sjá hér á vef stjórnarráðsins.
Rafræn samskipti verða héðan í frá meginsamskiptaleið hins opinbera við fyrirtæki og almenning. Fimm hundruð milljónir munu sparast með því að hætta að senda bréfpóst, koma fram í kynningunni.
Unnið verður að því að styrkja samskiptapóst í gegnum island.is og þar geti allar opinberar stofnananir verið í samskiptum við einstaklinga og fyrirtæki.
Ríkisskattstjóri hefur í tengslum við vinnu fjármála- og efnahagsráðuneytisins við pósthólfið ákveðið að niðurstaða álagningar opinberra gjalda á einstaklinga verði aðgengileg í gegnum pósthólfið, sem og á þjónustusíðu RSK, nú í lok maí. Með því að birta álagninguna og hætta bréfsendingum vegna annarra slíkra gjalda eins og bifreiðagjalda má spara 120 milljónir, segir í tilkynningunni.
Þá hefur Reykjavíkurborg einnig hug á að nýta sér pósthólfið island.is sem og Sjúkratryggingar Íslands. Nú þegar birta m.a. Þjóðskrá Íslands, Fjársýsla ríkisins og Tryggingastofnun bréf sín í pósthólfinu island.is