Rannsaka verður landsbankasöluna

Það er farið yfir breytt svið umræðuefna í fréttaskýringaþættinum Ritstjórunum á Hringbraut í þessari viku þar sem ritstjórarnir Björgvin G. Sigurðsson á Suðra og Páll Ketilsson á Víkurfréttum leiða saman hesta sína, en þáttinn má nú sjá hér á vef stöðvarinnar.

Sjónhverfingarnar á bak við Búnaðarbankasöluna koma fyrst til umræðu, en ritstjórarnir eru sammála um það, að enda þótt glæpurinn að baki kaupunum og öll sú augljósa svikaflétta sem þar bjó að baki, sé fyrndur, sé afskaplega mikilvægt að sannleikurinn komi að lokum fram í málinu, því af honum megi klárlega læra. Því sé afar brýnt að samskonar rannsókn fari fram á Landsbankasölunni á sínum tíma því almenningur eigi heimtingu á að vita hvað þar gerðist í raun og sann á bak við tjöldin.

Umskiptin í afstöðu landsmanna - og stjórnmálanna - til álversuppbyggingu verða einnig til tals, en þar eru að verða alger kaflaskil í afstöðu fólks til erlendra auðhringa sem fá hér á landi orkuna á niðursettu með viðhlítandi raski á náttúru landsins. Ferðaþjónustan sé sú stóriðja sem þar hafi tekið við af mengandi álverum - og þess sér raunar stað í svo miklum mæli á Suðurnesjum þessi misserin að allt er þar að fara á yfirsnúning, en ekki er laust að heimamenn á þeim slóðum ali með sér þann ótta sveitarfélögin á Reykjanesi ráði ekki við hraða uppbygginguna, eða sem nemur næstum 10% mannfjölgun á hverju ári fram til 2030 sem kallar á gríðarlega innviðauppbyggingu og byggingaaframkvæmdir.

Pólitíkin fær sitt pláss í þættinum, einkum sú spurning hvort flokkum á Íslandi muni fjölga að miklum mun á næstu misserum, en í lok þáttarins er svo vöngum velt yfir hryðjuverkunum í Stokkhólmi á föstudag og hvort ábyrrgðarmenn þeirra fái of mikla athygli fyrir illvirki sitt.

Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00.