Gjaldþrotum fækkar um 15% milli ára

Gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá ágúst 2014 til júlí 2015, hafa dregist saman um 15% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 719 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu.

Þetta kemur fram í samantekt Hagstofu Íslands í dag, en þar segir jafnframt að gjaldþrotum í framleiðslu hefur fækkað mest, eða um 34% á síðustu 12 mánuðum.

Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá ágúst 2014 til júlí 2015, hefur fjölgað um 11% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.219 ný félög skráð á tímabilinu. Mest er fjölgun nýskráninga í Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð, 38% á síðustu 12 mánuðum.