Atvinnulífið á Íslandi er smám saman að taka við sér og ná jafnvægi eftir efnahagshrunið sem hér varð á haustmánuðum 2008, eða, fyrir nálega sjö árum, en þetta sést bæði á fjölgun nýskráða félaga og fækkun gjaldþrota.
Hagstofa íslands birtir tölur þessa efnis í dag og eru þær allar ánægjulegar.
Gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá júlí 2014 til júní 2015, hafa dregist saman um 12% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 744 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Gjaldþrotum í flokknum framleiðsla hefur fækkað mest, eða um 24% á síðustu 12 mánuðum.
Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá júlí 2014 til júní 2015, hefur fjölgað um 11% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.173 ný félög skráð á tímabilinu. Mest er fjölgun nýskráninga í flokknum Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð, 48% á síðustu 12 mánuðum.