Gjaldþrotum fækkaði um 27% í fyrra

Gjaldþrotum einkahlutafélaga á árinu 2015 fækkaði um 27% frá fyrra ári. Alls voru 587 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á árinu, samanborið við 799 árið áður, að því er fram kemur í nýjum tölum Hagstofu Íslands.

Hlutfallslega fækkaði gjaldþrotum á árinu 2015 mest í fjármála- og vátryggingastarfsemi, þar sem þau voru 32 árið 2015 borið saman við 56 árið 2014 (43%). Gjaldþrotum fækkaði í öllum helstu atvinnugreinabálkum milli áranna 2014 og 2015. Hlutfallslega fækkaði þeim hægast í fasteignaviðskiptum, eða um 8% milli ára, úr 80 gjaldþrotum í 74.

Ef skoðuð er skipting á gjaldþrotum eftir landsvæði sést að gjaldþrotum fækkaði hlutfallslega mest á Norðurlandi eystra, þar sem 12 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta árið 2015, borið saman við 43 árið áður (72%). Mest hlutfallsleg fjölgun gjaldþrota milli ára var á Suðurlandi, þar sem 63 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta árið 2015, borið saman við 49 árið áður (29%).

Nýskráningum einkahlutafélaga á árinu 2015 fjölgaði um 16% frá árinu 2014. Alls voru 2.368 ný félög skráð á árinu, borið saman við 2.050 árið áður. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í fasteignaviðskiptum, þar sem þeim fjölgaði milli ára úr 222 í 352, eða um 59% frá fyrra ári. Meðal annarra greina þar sem nýskráningum fjölgaði má nefna byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð þar sem nýskráningum fjölgaði úr 223 í 292 (31%) og rekstur gististaða og veitingarekstur þar sem fjölgunin var úr 131 í 169 nýskráningar (29%). Mest hlutfallsleg fækkun nýskráninga árið 2015 var í upplýsingum og fjarskiptum, eða um 8% borið saman við fyrra ár (úr 185 nýskráningum í 171).

Ef skoðuð er skipting á nýskráningum einkahlutafélaga og hlutafélaga milli landshluta árið 2015 sést að þeim fjölgaði hlutfallslega mest á Vesturlandi, þar sem 81 félag var nýskráð árið 2015, borið saman við 57 nýskráningar árið 2014 (42%). Mestur hlutfallslegur samdráttur á nýskráningum milli ára var á Vestfjörðum, þar sem 34 félög voru nýskráð árið 2015, borið saman við 46 árið áður (26%).