Gjaldþrotum fækkar í öllum atvinnugreinum. Gjaldþrotabeiðnum fyrirtækja síðustu tólf mánuði fækkaði um 16% í samanburði við tólf mánuði þar á undan.
Alls voru 716 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu borið saman við 851 á fyrra tímabili.
Nýskráningu einkahlutafélaga fækkaði um 11% á öðrum ársfjórðungi 2017 borið saman við annan ársfjórðung 2016.
Nánar www.hagstofa.is