Veruleg fjölgun hefur orðið í hópi fólks sem farið hefur í gjaldþrot á allra síðustu árum. Árið 2014, fóru um 46% fleiri einstaklingar í gjaldþrot miðað við árið á undan og um 80% þeirra óskuðu eftir gjaldþrotinu sjálfir.
Þetta kemur fram í svari frá Creditinfo til upplýsingaveitunnar spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar sem óskaði eftir nýjum tölum um gjaldþrot. Í svarinu kemur fram að mjög líklega sé aukningin meðal annars vegna þess að þann 1.febrúar árið 2014, setti Alþingi ný lög sem gerir Umboðsmanni skuldara kleift að greiða gjaldþrotakostnað fyrir einstaklinga sem kjósa að fara þessa leið.
Það sem af er þessu ári, hafa 172 einstaklingar farið í gjaldþrot, en til samanburðar má nefna að hrunárið 2008, var þessi fjöldi 68 manns. Mun algengara er hér á landi að fólk fari á vanskilaskrá og endi með árangurslaust fjárnám en sé ekki gert upp til gjaldþrotaskipta. Eftir hrun breytti Alþingi lögunum þannig að fyrningafrestur gjaldþrota einstaklinga, er tvö ár í stað fjögurra ára áður. Þetta þýðir að fólk er afskráð af vanskilaskrá fyrr en ef það fær á sig árangurslaust fjárnám. Þá geta kröfuhafar ekki haldið áfram að innheimta einstaklinga sem farið hafa í gjaldþrot.