Gjaldmiðilinn

Krónan hefur svo lengi sem elstu menn muna sveiflast ótæpilega. Slíkt gerir það allt að því ómögulegt fyrir útflutningsgreinarnar að gera langtíma áætlanir. Í fylgiriti Frettablasins í dag segir: \"Útgerðin hefur alltaf tekið ávinninginn sem fylgir veikri krónu og stungið honum í vasann en þegar krónan styrkist hefur svo verið treyst á að vinveitt stjórnvöld felli gengið.\" 

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra og oddviti Viðreisnar lokar ekki augunum fyrir þeim ókostum sem fylgja íslensku krónunni. Benedikt hefur í erlendum blöðum talað fyrir því að taka upp annan gjaldmiðil. Benedikt nefnir evru og breska sterlingspundið. Vert er að geta þess að hugmyndir Viðreisnar um myntráð eru sömuleiðis góðra gjalda verðar. 

Sterk króna merkir einfaldlega að erfitt verður fyrir atvinnuvegina að standa sig í samkeppni. Krónan er of dýr. Lítt dugar að atyrða þá sem hafa sagt að varanleg sterk króna kunni að leiða til þess að atvinnugreinar að flytja framleiðslu sína úr landi.

Réttast væri að útflutningsgreinar hlusti á Benedikt. Horfa til dæmis til varanlegra lausna í gjaldmiðilsklemmu Íslands. Frekar en að umfaðma kunnar skammtímalausnar sem fyrr en seinna kosta Íslendinga beint hart skattfé og skerta lífsafkomu.

Nánar www.Vísir.is og @visirVidskipti