Vilhjálmur Þorsteinsson, hugbúnaðarhönnuður og gjaldkeri Samfylkingarinnar, upplýsir á facebook síðu sinni að hann eigi félag í Lúxemborg.
Þessi trúnaðarmaður Samfylkingar sem lýsir sér m.a. þannig að á eigin fésbókarsíðu að hann sé frjálslyndur jafnaðarmaður, greinir frá því í umræðum að hann eigi félag í Lúxemborg og er sett í samhengi við fréttir af aflandsfélögum sem tengst hafa þremur ráðherrum ríkisstjórnarinnar.
\"Það er fullskattlagt félag sem greiðir 21,84% tekjuskatt. Skattar eru ekki ástæðan fyrir því að ég vil hafa félagið þar, heldur krónan, gjaldeyrishöftin og pólitísk og efnahagsleg áhætta á Íslandi. Ef við værum í ESB væri engin ástæða til að hafa félagið erlendis. Hlutir mínir í sprotafyrirtækjum hér innanlands eru hins vegar að langmestu leyti í íslensku félagi.\"
\"Á sinni eigin síðu segir Vilhjálmur svo að þó hann eigi félag í Lúxemborg eigi hann ekki „aflandsfélag“ í „skattaskjóli\",\" segir í frétt Rúv.