Af gjaldmiðlum helstu viðskiptalanda Íslands hefur sterlingspundið lækkað mest. Um þetta skrifar Hagsjá Landsbanka Íslands.
Krónan styrkist á móti gjaldmiðlum helstu viðskiptalanda okkar í apríl og það sem af er þessum mánuði. Í lok dags hinn 12.maí stóð evran í 113,8 krónum samanborið við 119,1 krónu í ársbyrjun 2017 og Bandaríkjadalur í 104,0 krónum samanborið við 113,1 krónu í byrjun 2017 (-8,0%).
Velta á gjaldleyrismarkaði í apríl var 38,2 milljarðar króna (eða 321 milljarður evra) sem er 21% minni velta en í mars. Alls keypti Seðlabanki Íslands (SÍ) evrur fyrir 13,2 milljarða króna (eða 113 milljónir evra) og var hlutur SÍ 35% af veltu á gjaldeyrismarkaði í apríl.
Staða erlendra aðila í lengri ríkisbréfum - í bréfum með gjalddaga árið 2028 eða árið 2031 - jókst um 3,4, milljarða króna í aprílmánuði.
Þetta er fyrsti mánuðurinn síðan í maí 2016 sem við sjáum innflæði erlendra aðila í ríkisskuldabréf en slíkt innflæði stöðvaðist nær alfarið í kjölfar þess að SÍ lagði sérstaka bindiskyldu á þess háttar fjármagn.
Stóru viðskiptabankarnir þrír drógu úr hreinni gjaldeyrisstöðu sinni á fyrsta ársfjórðungi um sem nemur 6 milljörðum króna. Í lok fjórðungsins var hrein gjaldeyrisstaða þeirra 2 milljarðar króna.
í apríl fóru 154 þúsundu erlendir ferðamenn um Flugstöð Leifs Eríkssonar (FLE) sem er aukning um 62% milli ára. Alls fóru 605 þúsund erlendir ferðamenn á fyrstu fjórunm mánuðum ársins og nemur fjölgunin 56% milli ára.
rtá
Nánar www.landsbanki.is