Á Alþingi var í vikuni spurt hvenær vænta megi afnáms hafta af almenningi og af fyrirtækjum á Íslandi. Slíkt afnám gæti verið viðspyrna gegn sífelldri styrkingu krónunnar. Fram koma í svörum fjármálaráðherra að hans ráðuneyti undirbúi nú tillögur þar að lútandi.
Ráðherrann sagði að hann hefði ítrekað lýst því yfir að hann vildi algjört afnám hafta. Og það sem allra fyrst.
Fjármálaráðherra sagði að flöktið sem búið er að vera á krónunni sé óviðunandi fyrir allar útflutningsgreinar sem og innlent atvinnulíf.
Hinn 15.mars nk. verður birt næsta vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands. En framganga áætlunar um losun eða öllu heldur afnám fjármagnshafta gengur hægt.
Rétt er að rifja upp að vogunarsjóðir eiga yfir hundrað milljarða í aflandskrónum. Fulltrúar íslenskra stjórnvalda funduðu nýverið með vogunarsjóðunum. Spyrja má hvort sá fundur trufli nokkuð áform um aðgerðir stjórnvalda?
Nánar www.althingi.is og www.si.is og www.kjarninn.is