Gjalda varhug við sharm el sheik

Utanríkisráðuneytið ræður Íslendingum frá ónauðsynlegum ferðum til Sharm el Sheikh og til annarra áfangastaða á Sínaí-skaga vegna ótryggs ástands þar.

Ráðuneytið hvetur fólk ennfremur til að fylgjast með ferðaleiðbeiningum annarra ríkja, t.d. Norðurlandanna, en öfgahópum múslima hefur vaxið ásmegin á þessum slóðum að undanförnu, en þeir eru nú grunaðir um að hafa grandað rússnesku farþegaþotunni sem hrapaði þar til jarðar í síðustu viku með þeim afleiðingum að 224 farþegar og áhoöfn fórst.

Yfirvöld í Kreml hafa bannað rússneskum vélum að fljúga yfir Sínaí-skaga og fjöldi annarra landa hefur goldið varhug við flugi til og frá Sharm el Sheikh sem er vinsælasti sumarleyfisstaður Egyptalands.