Gjalda varhug við hatrinu á sögu

Ungir jafnaðarmenn hafa sent frá sér tilkynningu á Facebook-síðu sinni þar sem þeir gjalda varhug við ofstækisfullri umræðu í þáttum Útvarps Sögu. "Hat­ursorðræða lif­ir góðu lífi á Útvarpi Sögu. Þátt­ar­stjórn­end­ur leyfa henni að grass­era og taka í mörg­um til­vik­um und­ir hana. Send­um Útvarpi Sögu skýr skila­boð um að hat­ursorðræða sé ekki liðin í okk­ar sam­fé­lagi,“ seg­ir á síðunni.


Mót­mæl­in eiga að fel­ast í því að hringja inn í síma­tíma stöðvar­inn­ar frá klukk­an 09:00 til 12:00 á föstu­dag og taka upp hansk­ann fyr­ir minni­hluta­hópa, og er fólk hvatt til að taka þátt. Þegar hafa á þriðja hundrað manns boðað þátt­töku sína.


„Tök­um upp hansk­ann fyr­ir minni­hluta­hópa á borð við hinseg­in fólk og inn­flytj­end­ur sem verða fyr­ir reglu­legu aðkasti á stöðinni,“ seg­ir á fésbókarsíðu unga fólksins sem virðist nóg boðið hvernig umræðum er stýrt á Útvarpi Sögu.