Gistiþjónusta í hálfa öld og jógaferð

Sigmundur Ernir kynnist 50 ára fjölskyldusögu eigenda Hótel Laka á Kirkjubæjarklaustri. Hörður Davíðsson og Salóme Ragnarsdóttir ásamt dætrum,  í Efri-Vík í Landbroti hafa boðið gistiþjónustu 50 ár og eru meðal fyrstu ferðaþjónustubænda landsins. Þau hófu leigu á einu herbergi á heimilinu sem nú hefur byggst upp í 70 herbergja vandað sveitahótel sem mun stækka enn frekar á komandi árum. 

Linda Blöndal  hittir Sólveigu Þórarinsdóttur, jógakennara og eigandi Sóla jóga- og heilsustöðvarinnar úti á Granda. Sólveig segir frá ferðum sínum til eyjunnar Koh Samui í Thailandi þangað sem hún fer nú þriðja árið í röð með skipulagða jógaferð en sjálf hefur hún margoft dvaldið á eynni. 

 

Ferðalagið er frumsýnt kl.20 öll mánudagskvöld og svo endursýnt.