Gistinætur á hótelum í desember síðastliðnum voru 299.400, sem er 3% fjölgun frá sama mánuði árið áður, að því er fram kemur í frétt á vef Hagstofu Íslands í dag.
Um 72% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu eða 214.900, sem er nánast óbreytt frá fyrra ári. Nokkur fjölgun varð á gistinóttum frá desember fyrra árs á Suðurnesjum (27%) og Norðurlandi (18%).
Um 91% gistinátta voru skráðar á erlenda ferðamenn, en erlendum gistinóttum fjölgaði um 4% frá desember í fyrra meðan gistinóttum Íslendinga fækkaði um 3%. Bretar gistu flestar nætur (85.800), síðan Bandaríkjamenn (73.500) og Kínverjar (26.400), en gistinætur Íslendinga voru 27.800.