Gistinóttum fjölgar

Gistinóttum erlendra ferðamanna á heilsárshótelum fjölgaði alls staðar á landinu á fyrstu fjórum mánuðum ársins borið saman við sama tímabil í fyrra. Nokkuð hefur borið á afbókunum á gistirými á Vesturlandi og á Vestfjörðum upp á síðkastið. Talað hefur verið um 35-40% fækkunu á gestum. Tölur ná einungis til og með aprílmánuði þannig að ef að þessi þróun er nýtilkomin er ekki hægt að sjá hana fyrr en nýjar tölur berast. Þessar tölur ná einungis til gistinga á heilsárshótelum. Þróunin í annars konar gistirými kann að vera mun verri á liðnum mánuðum. Um þetta er fjallað í Hagsjá Hagfræðideildar Landsbanka Íslands.

rtá

Nánar www.landsbankinn.is  www.hagstofa.is