Airbnb stækkar yfir 100 prósent

Hið svonefnda deilihagkerfi stefnir í að verða umfangsmeira en öll hótel á landinu til saman, segir í ferðaþjónustugreiningu Íslandsbanka. Airbnb velti í kringum 20 milljörðum króna í fyrra og er það 109 prósent aukning frá árinu áður. Nú þegar er rekstur Airbnb á Íslandi orðinn þrisvar sinnum umfangsmeiri en öll gistiheimili landsins.
 
„Íslensk ferðaþjónusta mun á þessu ári halda áfram að auka umfang sitt í hagkerfinu og styrkjast sem máttarstólpi í íslensku samfélagi”, segir enn fremur í greiningunni.
 
Þar kemur einnig fram fram að nýting hótelherbergja sé með hæsta móti hér á landi í alþjóðlegum samanburði og gisting í Reykjavík orðin ein sú dýrasta á Norðurlöndum. Hið svonefnda deilihagkerfi hefur leikið mikilvægt hlutverk í að gera þeim fjölda ferðamanna sem hingað hefur ferðast á undanförnum árum kleift að dvelja á landinu. Nú sé þó svo komið að deilihagkerfið stefnir í að verða umfangsmeira en öll hótel á landinu til samans þegar kemur að gistingu ferðamanna hér á landi.