Gissur fór ekki út úr húsi í margar vikur: „börnin mín sáu um að það væri alltaf nóg til í ísskápnum“

„Ég brann hreinlega út, læknarnir kalla það burnout og það lýsti sér þannig að ég svaf í 15 klukkustundir á sólarhring í eina þrjá mánuði.“

Þetta segir fréttahaukurinn Gissur Sigurðsson í samtali við Eirík Jónsson. Gissur hefur um árabil verið einn vinsælasti fjölmiðlamaður þjóðarinnar. Þeir sem hlusta á Bylgjuna ættu að muna eftir mögnuðum fréttaskýringum Gissurar á morgnanna. Gissur segir við Eirík: „Allt byrjaði þetta rétt fyrir jól og ég svaf þau af mér og áramótin líka.“

Þá tjáir Gissur sig einnig við DV. Þar segir Gissur að hann hafi aldrei kunnað að slaka á. Skömmu fyrir jól fór hann að finna fyrir mikilli þreytu og ljóst að eitthvað amaði að. Gissur gekk á milli lækna sem höfðu fá svör fyrst til að byrja með. Það var ekki fyrr en hann leitaði til sálfræðings að í ljós kom hvað var að hrjá hann.  Gissur gagnrýnir harðlega íslenska heilbrigðiskerfið.

„Ég byrjaði að fara til lækna alveg endalaust, í allar rannsóknir sem til voru, og ekkert fannst að. Enginn læknir varaði mig við þessu. Enginn læknir hafði vit á því að spyrja hvernig lífið hefði verið hjá mér. Þeir eru að flýta sér til að fá sem flesta sjúklinga, til að fá sem mestar tekjur. Ég veit núna hvernig heilbrigðiskerfið virkar og ég er ekkert skotinn í því skal ég segja þér.“

Eftir heimsókn til sálfræðings kom svarið sem hann hafði beðið eftir, kulnun í starfi. Gissur segir:

 „Ég keyrði full steam þar til ég bara hrundi. Þá var ofþreytan bara svona rosalega uppbyggð.“ Gissur bætir við:

„Ég bara lá í hýði, ég fór varla út úr húsi svo vikum skipti. Börnin mín sáu um að það væri alltaf nóg til í ísskápnum hjá mér og það helsta í kringum mig. Ég er ofboðslega heppinn. Þau skiptu þessu á milli sín blessuð og gerðu þetta af mikilli prýði.“

Og næstu þrjá mánuði var Gissur meira og minna sofandi og er nú að vinna sig út úr erfiðleikunum. Hefur hann slakað á í þrjá mánuði og notið veðurs og að umgangast barnabörnin. Hann er þó ekki orðin alhress en staðan er þó mun betri. Kveðst Gissur vera sáttur við lífið í dag en bætir við að læknar hafi tjáð honum að hann sé heppinn, framfarirnar séu slíkar. Gissur segir:

 „Þetta verður að kallast eiginlega áfall. Og ég hef sloppið alveg ótrúlega vel út úr þessu.“