Gísli Marteinn Baldursson vill að hámarkshraði í Reykjavík, vestan Snorrabrautar, verði lækkaður í 30 kílómetra á klukkustund. Þetta kemur fram á Twitter síðu Gísla þar sem hann segir að þetta myndi bjarga mannslífum. Eyjan greindi fyrst frá.
„Þetta mun bjarga mannslífum, draga úr mengun og gera umhverfið miklu betra. Byggja svo upp að Hringbrautinni beggja vegna og breyta í borgargötu,“ skrifar hann á Twitter.
Þar vísar hann í gögn sem sýna að banvænum umferðarslysum hafi fækkað í Helsinki eftir að hámarkshraðinn var lækkaður þar. Færsla Gísla hefur vakið mikla athygli en 99 manns hafa brugðist við henni.
Þá spyr fjölmiðlakonan Margrét Hugrún hversu margir hafi látist á svæðinu sem Gísli talar um. Gísli svarar og segir að fjöldi fólks hafi slasast. „Því miður látast gangandi og hjólandi vegfarendur reglulega. Tölurnar eru til. Skólakrakkar voru iðulega keyrðir niður og sumir dóu við skólana sína áður en 30km hverfi voru sett utanum þá (sem bílavinir mótmæltu auðvitað),“ segir Gísli. „Íslendingar keyra eins og fávitar,“ svarar Margrét þá.
Þá bendir Þórdís Gísladóttir á að fólk hafi látið lífið á Snorrabraut. „Og nokkrir hafa verið að láta lífið á Sæbrautinni undanfarin ár,“ segir Gísli þá og heldur áfram. „Jafnvel þótt svarið væri: Núll, enginn hefur dáið, þá myndi ég samt vilja þetta. Hraðinn ER hættulegur og fólk mun deyja og slasast. Hraðinn veldur hávaða og mengun og hann er óþarfi inni í miðbæ.“
Ég hef áður talað um það hér að Reykjavík vestan Snorrabrautar á að vera með 30km hámarkshraða. Þar eru langflestir gangandi á ferli. Þetta mun bjarga mannslífum, draga úr mengun og gera umhverfið miklu betra. Byggja svo upp að Hringbrautinni beggja vegna og breyta í borgargötu. https://t.co/8NiBWM3TxL
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) February 6, 2020