Gísli marteinn verði sendur í sveit

Myndin hér að ofan flýgur nú um Internetið og hafa margir deilt henni á samfélagsmiðlum. Myndin er ádeila á sjónvarpsþáttastjórnandann Gísla Martein sem virðist hafa styggt meirihluta íbúa landsbyggðanna með ummælum sínum um helgina. Þá spurði Gísli Marteinn á Twitter hvort ekki væri nær að greiða þeim íbúum á Neskaupstað 10 milljónir króna á mann fyrir að flytja í bæinn fremur en að standa straum að kostnaði við snjóflóðavarnagarða.

Margir sveitarstjórnarmenn hafa brugðist við ummælum Gísla Marteins af hörku. Hefur verið nefnt að Gísli Marteinn hafi rörsýn á íslenskt samfélag, sjái ekki upp fyrir Ártúnsbrekkuna. Byggðir úti á landi afli tekna sem geri höfuðborgarbúum kleift að viðhalda ákveðnu lífsgæðastigi en í stað biturðinnar áður hefur nú húmor leyst hörkuna af hólmi.

Á myndinni er mælt með að þáttastjórnandinn verði sendur í sveit, hann má hafa með sér hjólið sitt.

Ekki er öllum skemmt og hefur verið nefnt að þáttastjórnandinn sé lagður í einelti vegna skoðana sinna.