Gísli Marteinn spyr lög­regluna um veður: „er byrjað að sekta þá lög­brjóta sem eru að enn­þá að spæna upp mal­biki og svif­ryki á nöglunum sínum?

Gísli Marteinn Baldursson spurði lögregluna í dag, á Twitter-síðu, eftir hverju hún bíði með að sekta ökumenn sem keyra um á nagladekkjum. Samkvæmt reglugerð er bannað að keyra á nagladekkjum á tímabilinu frá 15. apríl til 31. október. Tíu dagar eru síðan nagladekk voru bönnuð í höfuðborginni og veðurfar undanfarið verið með blíðasta móti. Samt sýnist Gísla fullmargir enn fara ferða sinna um á negldum dekkjum

Í erindi sínu til lögreglu bendir hann á að svifryk, sem stafar af miklu leyti af notkun nagladekkja, dragi árlega til dauða tugi manns. Hann hvetur lögreglu til að taka á þessum „lögbrjótum“ á tafar með fjársektum var nýlega voru hækkaðar talsvert.

Gísli hefur áður tjáð vanþóknun sína á notkun nagladekkja í höfuðborginni áTwitter og rætt skaðsemi þeirra á heilsu og velferðborgarbúa. Þá hefur hann líka sett út á meint aðgerðaleysi lögreglu við að stemma stigu við því að dekkin séu notuð lengur en lög kveða á um.