Gísli marteinn: óttaðist eitthvað alvarlegra – ísland gæti fengið bann

Gísli Marteinn Baldursson var gestur í Silfri Egils fyrr í dag. Þar var rætt um gjörning Hatara sem héldu á klútum í palestínsku fánalitunum. Sagði Gísli að ekki hefðu verið mikil viðbrögð í salnum, nokkrir Ísraelar hefðu púað en fjöldi listamanna hrósað þeim.

 „Ég held að raunverulega hafi það ekki komið neitt svakalega á óvart að Hatari hafi gert eitthvað með þessum hætti. Ég segi fyrir mig að ég óttaðist alveg að það gæti komið eitthvað sem væri alvarlegra og drægi þyngri dilk á eftir sér en þetta mun gera.“

Bætti Gísli Marteinn við að hann teldi að þetta ætti ekki að þurfa að hafa alvarlegar afleiðingar. Þó væri hugsanlega mögulegt að meina Íslandi að taka þátt í keppninni á næsta ári eða hreinlega þurrka út árangur Íslands í keppninni í ár. Gísli Marteinn sagði:

„Við erum eitt af stóru atriðunum í ár. Það væri hægt að strika það út með einhverjum hætti.“