Gísli Marteinn og Atli Fannar skjóta á Sigmund Davíð: „Tekur auðvitað stöðu með elítunni“

„Skil ekki alveg. Er Sigmundur semsagt á móti lægra bensínverði?,“ spyr fjölmiðlamaðurinn Gísli Marteinn Baldursson á Twitter. Vísar hann þar í frétt Hringbrautar af ummælum Sigmundar Davíðs um áform um að fækka bensínstöðvum og frétt um að Félag íslenskra biðfreiðaeigenda fagni fækkuninni sem komi til með að þýða lægra eldsneytisverð.

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son, for­mað­ur Mið­flokks­ins og fyrr­ver­and­i for­sæt­is­ráð­herr­a, vandaði Degi B. Eggerts­syn­i ekki kveðj­urn­ar vegna fækkunar bensínstöðva. Segir hann það „lið­ í því að hrekj­a fjöl­skyld­u­bíl­inn af göt­um borg­ar­inn­ar.“

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, sagði við RÚVað fækkunina vera í anda þess sem félagið hafi kallað eftir um árabil. „Ef við berum þetta saman við þéttbýliskjarna í nágrannalöndum okkar, miklu stærri borgir, höfuðborgir Norðurlandanna og svo framvegis þá hefur enginn þéttbýliskjarni haft jafn mikla þéttni stöðvanets eins og Reykjavík.“

Atli Fannar Bjarkason, samfélagsmiðlastjóri RÚV, segir þetta árásir af hálfu Sigmundar.

„Þessum árásum Sigmundar gegn okkur eigendum fjölskyldubíla þarf að linna. Tekur auðvitað stöðu með elítunni á bakvið bensínstöðvabáknið sem þenur sig út með sölu á samlokum og skyrdrykkjum.“