„Sjaldan eða aldrei hafa réttindamál og pólitík verið jafn áberandi í umgjörð keppninnar. Leikmenn eru ekki lengur vandræðalegir þegar rætt er um pólitík heldur taka þátt í kröfu um aukið frjálslyndi og jöfnuð,“ segir Gísli Marteinn Baldursson, fjölmiðlamaður, í færslu á Twitter þar sem hann birtir nokkrar pælingar í tengslum við Evrópumótið í knattspyrnu karla sem er nýlokið.
Hann segir regnbogafánann og hnéð eru augljósustu dæmin um að leikmenn taki afstöðu. Gísli Marteinn segir þetta þó umdeilt:
„ Íhaldið og afturhaldið í Evrópu (og Íslandi) vill ekki þessa woke breytingu. Enskar bullur púuðu á liðið sitt og Boris og íhaldsfólkið í kringum hann sýndu þeim engan stuðning. Eru svo steinhissa núna að Saka, Rashford og Sancho verði fyrir kynþáttahatri,“ segir Gísli Marteinn og vísar til fordóma sem vítaskyttur Englands urðu fyrir eftir leikinn í gær.
„Sama með afstöðu þjóðernisíhaldsins til hinsegin fólks. Meðvirkni og innbyggðir fordómar kallanna í UEFA og fjölda annarra í valdastöðum eru eldsneyti fyrir hatursglæpi. Hvernig sem við viljum þýða ‘woke’ þá þarf gott fólk allsstaðar að halda vöku sinni og taka afstöðu.“
Hann segir að leikmenn séu að stíga fram. „Fótboltamenn í enska boltanum hafa verið að stíga fram og verja mannréttindi og taka afstöðu: Rashford að snúa íhaldsstjórnina niður í matarmálum skólabarna, Bellerin að verja fóstureyðingar, Dier að tala gegn Brexit, Rose að opna umræðu um geðheilbrigði, Sterling og rasisminn,“ segir Gísli Marteinn.
„Þetta er nýr veruleiki og margir hörðustu aðdáendur boltans eru ráðvilltir. Skoðanirnar sem leikmennirnir eru að setja fram eru flestar ‘woke’, frjálslyndar, snúast um réttindamál. Skoðanir góða fólksins. Þetta er erfitt fyrir íhaldssama. En gott fyrir heiminn.“
Undir þetta taka margir, þar á meðal tónlistarmaðurinn Logi Pedro: „Voru ákveðin tímamót þegar Fox News sagði Lebron að „halda kjafti og drippla”,“ segir hann á Twitter. „Ef þú ert með platform og stendur ekki fyrir neitt, þá mun sagan og fólkið sjá að þú ert ekki neitt. Hlutir breytast.“