Gísli Marteinn: Hallærislegt að færa þjóðarleikvanginn

Fjölmiðlamaðurinn Gísli Marteinn Baldursson segir vangaveltur um hvort færa eigi þjóðarleikvang Íslands út í úthverfin vera hallærisleg. Heitar umræður hafa skapast um nýjan þjóðarleikvang í Laugardalnum eftir að Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, sagði að málið strandaði á Reykjavíkurborg sem vildi ekki setja fé í verkefnið. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, sagði hins vegar að málið strandaði á ríkinu sem gerði ekki ráð fyrir verkefninu á fjármálaáætlun.

Hugmyndir hafa vaknað hvort það sé þá ekki best að sleppa því að byggja þjóðarleikvanginn í Reykjavík, fara frekar með hann í Garðabæ eða Kópavog. Einnig hafa Selfyssingar viðrað hugmyndir um að fá völlinn til sín.

Friðjón Friðjónsson, almannatengill, segir á Twitter að það sé ekkert lykilmál að hafa völlinn í Laugardag. „Alltof margir eru fastir í að hafa völlinn í Laugardal. Hann ætti bara að vera nálægt góðum almenningssamgöngum og samgönguæð almennt,“ segir hann. „Finndu 3-4 hektara nálægt þar sem borgarlínan mun ganga og með aðgengi fyrir rútur, TV trukka og amk 30-40 bílastæði fyrir hreyfihamlaða, ekki í brekku og raunhæft að það séu bílastæði einhverstaðar í 5-800m radíus þá er þetta ekkert mál.“

Gísli Marteinn er ekki á sömu línu.

„Þótt Borgarlínan sé frábær þá munu aðrir strætóar áfram skipta máli og leigubílar. Fjöldi kemur gangandi og hjólandi á völlinn. Giska á að yfir 50 þúsund manns séu í < korters hjólafjarlægð frá Laugardal,“ segir hann. „Hálfkveðnar vísur um Garðabæ eða aðra staði í Kraganum eru hallærislegar.“

Friðjón leggur þá til Safamýrina þar sem Fram spilaði eitt sinn. „Safamýrin blasir líka við sem valkostur, æðislegar almenningssamgöngur og næg bílastæði sem eru tóm á kvöldin rétt hjá. Öll Miklubrautarhliðin gæti verið hótel og skrifstofur.“