„Þá er Eurovison 2019 lokið. Árangur okkar Íslendinga í ár er ekkert annað en stórglæsilegur. Við endum í 10. sæti af 41 þjóð, unnum símakosninguna í okkar riðli og urðum í 6. sæti í símakosningunni í úrslitunum.“
Þannig hefst pistill eftir Gísla Martein Baldursson sem nú er á heimleið. Þar gerir Gísli Marteinn upp Eurovison. Gísli Marteinn segir:
„Hinn góði árangur felst þó ekki síst í framgöngu Hatara, bæði á sviðinu og utan þess. Þau sögðust ætla að nýta sér dagskrárvaldið og gerðu það með vaxtavöxtum. Stærstu og virtustu fjölmiðlar heims hafa fjallað um Hatara og skilaboð þeirra. Atriðið er rammpólitískt og í raun var hinn táknræni stuðningur við Palestínu mun ópólitískari yfirlýsing en atriðið sjálft. Palestína er fullvalda ríki sem við Íslendingar viðurkennum sem slíkt.“
Gísli bætir við að starfsfólk RÚV hafi gert sér grein fyrir að ekki mætti sýna fánaliti á þessum tímapunkti og þau hefðu ekki samþykkt slíkt ef þau hefðu verið spurð. Gísli heldur áfram:
„En ég væri mjög hissa ef EBU tæki harkalega á þessu í ljósi fjölmargra annara dæma um þjóðfána annarra ríkja í keppninni og sömuleiðis yfirlýsingar Madonnu á sviðinu skömmu áður. (Ef Eivör hefði tekið þátt í keppninni fyrir okkar hönd 2003 (þegar hún var í forkeppninni) og sveiflað færeyska fánanum í græna herberginu, væru einhverjir á Íslandi þá að ræða brot á reglum keppninnar?)“
Forréttindi að vinna með teyminu
Gísli Marteinn hrósar svo öllu teyminu og starfsfólki RÚV sem var á svæðinu.
„Undir stjórn Felix Bergssonar fannst mér Rúv takast að veita listamönnunum frelsi en standa á sama tíma við þær skuldbindingar sem við höfum gefið öðrum þjóðum EBU og gera Eurovision 2019 miklu betri og ríkari en hún hefði verið án okkar framlags,“ segir Gísli Marteinn og þakkar einnig fyrir þann stuðning sem hann fékk persónulega sem kynnir.
„Núna er íslenski hópurinn á heimleið, ansi hreint þreyttur á líkama og sál og ég er bæði glaður og þakklátur fyrir að hafa tekið þátt í þessari sigurför. Ég vil líka þakka fyrir öll jákvæðu viðbrögðin við kynningunum mínum í útsendingunni! Ekkert smá gaman að fá svona mikil og góð viðbrögð og gleður mig að þið hafið haft gaman af þessum pabbabröndurum!“