Gísli marteinn ergir landsbyggðafólk

Mikil reiði ríkir víða úti á landi vegna ummæla Gísla Marteins. Hann tísti um helgina vegna fréttar í Mogganum að áætlaður kostnaður við snjóflóðavarnargarða í Neskaupstað næmi 2,5 milljörðum króna. „Hefur einhver spurt hvort þetta fólk myndi kannski bara vilja þessar 10 milljónir á mann og flytja í bæinn?“ spurði Gísli í færslu sinni vegna fréttarinnar og verður ekki annað skilið af orðum hans en honum svíði mjög þetta fé sem fari til öryggis íbúanna fyrir austan.

Eyjan hefur greint rá reiði forseta bæjarstjórnar Fjarðarbyggðar sem hefur gert athugasemd við að Gísli stýri sjónvarpsþætti á Rúv, maður með svo vondar skoðanir. Fleiri hafa slegist í hópinn. Þar á meðal kennarinn Jóhannes Gunnar Bjarnason á Akureyri, fyrrum oddviti framsóknarmanna og bæjarfulltrúi.

„Margir hafa sagt sínar skoðanir á málflutningi Gísla Marteins en svo heiftarlega er mér misboðið að ég verð að hripa niður nokkur orð. Hvergi á landinu er sköpuð jafnmikil verðmæti til útflutnings miðað við fólksfjölda. Aðeins 3% þjóðarinnar býr á Austurlandi en nærri fjórðungur útflutningstekna eru þar framleidd. Svipaða sögu má segja um Vestmannaeyjar. Borgarstjóramenntaði sjónvarpsmaðurinn fær launin sín greidd af sölu þessara verðmæta. Hann barðist gegn Reykjavíkurflugvelli með odd og egg en sú afstaða er skiljanlegri í ljósi þessara yfirlýsinga,“ skrifar Jóhannes Gunnar í athugasemd við frétt Eyjunnar.

Kennarinn heldur áfram: „Ef við leggjum saman þær tekjur sem einungis íbúar Neskaupstaðar hafa lagt til ríkiskassans síðustu 10 ár eru sjálfsagðar snjóflóðavarnir þjóðhagslega nauðsynlegar. Við höfum ekki efni á að íbúar Fjarðabyggðar flytji til Hafnarfjarðar. Vonandi er hægt að mennta sig meira í borgarstjórafræðum. Norðfirðingar ættu að bjóða honum í framhaldsnám. Hliðarkúrs gæti fjallað um sköpun útflutningsverðmæta og mannlíf á landsbyggðinni. Skammastu þín Gísli,“ skrifar Jóhannes Gunnar og skefur ekki af því.

Þá hefur víða mátt lesa á samfélagsmiðlum að umdeilanleiki Gísla Marteins vegna færslunnar hafi síst hjálpað Ríkisútvarpinu sem nú rær varnarróður fyrir starfsemi sinni í kjölfar svartrar skýrslu.