Gísli marteinn: „aðförin er rétt að byrja“ – andrés: „vá, að vera þessi gæi“

Frétt Morgunblaðsins sem ber titilinn: 7 sekúndna grænt ljós „algjörlega ólíðandi“ hefur vakið nokkra athygli. Þar kemur fram að bæj­ar­stjóri Seltjarn­ar­ness ætl­ar að óska eft­ir svör­um frá, Degi B. Eggerts­syni borgarstjóra Reykjavíkur, vegna knapps græns beygju­ljóss á gatna­mót­um Geirs­götu og Lækj­ar­götu. Magnús Örn Guðmunds­son, for­seti bæj­ar­stjórn­ar Seltjarn­ar­ness, heldur fram að margir Seltirningar séu ósáttir og þá helst þeir sem nýta sér leiðina heim úr vinnu og daglegum störfum.

Magnús tók upp myndskeið undir stýri af ljósunum þar sem hann er akandi við Hörpu í fyrradag þegar klukkan var um 17:30. Segir Magnús að græna ljósið hafi logað í um sjö sekúndur. Segir Magnús að röðin við ljósin hafi verið löng en hann tjáði sig við Morgunblaðið:

„Ég veit að það eru ansi marg­ir sem eru að verða þreytt­ir á þessu, maður finn­ur það hérna í kring­um okk­ur, þetta er lítið sam­fé­lag, maður fer út í búð og það eru all­ir kvart­andi. Við skor­um á borg­ar­yf­ir­völd að liðka fyr­ir um­ferð í staðinn fyr­ir að hefta hana, sér­stak­lega á álagstíma.“

Magnús hefur verið töluvert gagnrýndur á samfélagsmiðlum eftir að viðtalið birtist á vef mbl.is. Bæði Gísli Marteinn Baldursson fyrrverandi borgarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn og svo Andrés Jónsson almannatengill telja umkvörtunarefni Magnúsar vera heldur lítilmátlegt. Þá hefur verið bent á það að forseti borgarstjórnar hafi tekið upp myndskeið undir stýri og vilja aðrir meina að hann aki yfir á rauðu ljósi. Gísli Marteinn gagnrýnir einnig Morgunblaðið og ekki í fyrsta sinn og telur blaðið vera á móti umbótum á Hverfisgötu og svo við Hafnartorg.  Gísli Marteinn segir:

„Gaman fyrir Mogga að vera með sinn eigin bæjarfulltrúa á Nesinu. Á móti borgarlínu, á móti greiðum leiðum gangandi en með hraðbrautum fyrir bíla, ekki síst þeim sem skera önnur hverfi í sundur. Get fært honum fréttir: #aðförin er rétt að byrja.“

Þá segir Andrés Jónsson: „Vá, að vera þessi gæi. Honum finnst í alvörunni verið að brjóta á sér með því að hann sé aðeins lengur af Nesinu í vinnuna sína í Borgartúni. Jú, engum finnst gaman í umferð en taktu það upp við Vegagerðina beint frekar en að frekjast svona í fjölmiðlum.“

Þá óskaði einn notandi á Twitter eftir áliti lögreglunnar á því að Magnús tæki upp myndskeið undir stýri. Lögreglan var fyrir svörum og var það á þessa leið: „Þarna er tæpast glannaskapur, en sannarlega er ekki gott að vera að taka upp myndband þegar viðkomandi á að vera að einbeita sér að akstrinum.“