Gísli kaupir eyjuna vigur á um 300 milljónir króna

Gísli Jónsson, bílstjóri hjá Arctic Trucks sem hefur víðtæka reynslu af því að ferðast um Suðurskautslandið, hefur fengið tilboð samþykkt í eyjuna Vigur í Ísafjarðardjúpi. Kaupverðið er um 300 milljónir króna. Vísir greinir frá og kveðst hafa fyrir því heimildir að Gísli hafi áform um að stunda ferðaþjónustu á eyjunni og bæta við þá þjónustu sem verið hefur hingað til.

Um þessar mundir er verið að hnýta um hefðbundna lausa enda við söluna á eyjunni, sem er seld í heild sinni með öllum húsakosti og hlunnindum. Vigur hefur verið til sölu síðan í júní í fyrra.

Í ágúst síðastliðnum greindi RÚV frá því að tilboð erlendra aðila í eyjuna hefði verið samþykkt. Þeir aðilar drógu þó tilboð sitt til baka vegna reglna um sóttkví og einangrun þegar dýr eru flutt inn til landsins. Var þá opnað fyrir tilboð að nýju.

Á vef Þjóðminjasafnsins er greint frá því að tvö hús á hinni sögufrægur eyju séu í eigu safnsins. Þar er um að ræða einu varðveittu vindknúnu kornmyllu landsins úr timbri, sem talið er að hafi verið reist um 1860, og svonefnt Viktoríuhús, timburhús sem var reist um svipað leyti.