Gísli hætti vegna útrásar

Gísli Hauksson, fyrrverandi forstjóri og stjórnarformaður sjóðsstýringarfyrirtækisins GAMMA, hætti hjá fyrirtækinu í byrjun mars meðal annars vegna ágreininings um útrás fyrirtækisins til Sviss, Bandaríkjanna og Bretlands.

Stundin segir frá þessu í dag. Heimildir hennar herma að kostnaðurinn við útrásina hafi verið ásteytingarsteinn innan fyrirtækisins. Gísli var sá sem hvað helst stóð á bak við erlenda útrás fyrirtækisins.

„Það var fyrirhugað að opna í Sviss en ákveðið að fara ekki lengra með það – eins og staðan er núna er ekki stefnt á opnun í öðrum löndum heldur er stefnan að byggja á skrifstofum okkar í London og New York,“ sagði Valdimar Ármann, forstjóri GAMMA, en hann hefur ekki viljað svara spurningum um hvers vegna Gísli hætti hjá fyrirtækinu.

Gísli er annar af stofnendum GAMMA og annar af stærstu hluthöfunum. GAMMA er 10 ára gamalt sjóðsstýringarfyrirtæki með um 130 milljarða króna í stýringu í gegnum marga sjóði fyrir fjölda fjárfesta, stofnana- og fagfjárfesta. Ekki liggur fyrir hverjir það eru sem eru á bak við einstaka sjóði hjá fyrirtækinu þar sem eigendur hlutdeildarskírteina í hinum ýmsu sjóðum þess eru ekki opinberir.