Gísli freyr greiðir milljónir í bætur

Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í morgun að sátt hefði náðst á milli Gísla Freys Valdórssonar fyrrverandi aðstoðarmanns innanríkisráðherra og Evelyn Glory Joseph vegna skaða sem hún hlaut af vegna lekamálsins. Evelyn krafðist upphaflega hálfrar fimmtu milljóna króna í bætur af Gísla Frey, en lögmaður hennar, Katrín Oddsdóttir, vildi í morgun ekki nefna hversu margar milljónir yrðu greiddar í bætur; báðir aðilar væru þó ágætlega sáttir við niðurstöðuna.
Gísli Freyr hlaut sem kunnugt er átta mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir að hafa lekið trúnaðargögnum um hælisleitandann Tony Omos á fyrstu mánuðum embættistíðar Hönnu Birnu Kristjánsdóttir á ráðherrastóli, en nafn Evelyn kom fyrir í þeim gögnum.