Gísli blandar sér í stóra paprikumálið

Gísli Garðarsson slær á létta strengi í dag og birtir samanburð á því hversu margar paprikur einstaklingur getur keypt á lágmarkslaunum á Íslandi og til samanburðar hvað einstaklingur á lágmarkslaunum á Spáni getur keypt mikið af paprikum.

Færsluna birtir Gísli í kjölfarið af umræðu sem myndaðist eftir aðfjölmiðlamaðurinn Eiríkur Jónsson birti mynd sem sýndi verðmuninn á papriku á Íslandi og á spænsku eyjunni Tenerife.

Gísli bendir á að lágmarkslaun hafi hækkað verulega frá því að sósíalistar tóku við völdum.

„Síðan sósíalistar tóku aftur við völdum á Spáni fyrir fimm árum hafa lágmarkslaun hækkað um 47% og eru nú €1,080 á mánuði eftir síðustu hækkun um áramótin. Eftir skatta og gjöld á Kanaríeyjum færðu greiddar €950 á lágmarkslaunum eða 146.095 kr. á gengi dagsins. Á Íslandi eru lágmarkslaun skv. heimasíðu Samtaka atvinnulífsins 368.000 kr. og fær sá sem er á þeim launum, að því gefnu að hann sé ekki með séreignarsparnað, útborgaðar eftir lögbundinn lífeyri, iðgjöld í stéttarfélag og tekjuskatt og útsvar að frádregnum persónuafslætti, 299.262 kr,“ segir í færslunni áður en hann heimfærir það yfir á paprikur.

„Þá að paprikunum. Eftir því sem ég kemst næst þá kostar kíló af paprikum á Tenerife í ódýrri matvörubúð ca €1.5 eða 231 kr. á gengi dagsins. Miðað við tilvitnaða kassakvittun í Bónus er kílóverðið nú 1.098 kr.

Það liggur því þannig í því, vilji verkamaður á lágmarkslaunum eyða öllu sínu mánaðarlega ráðstöfunarfé í paprikur, að sá íslenski getur keypt sér 273 kíló af paprikum en sá kanaríski 633 kíló af paprikum.“