Að minnsta kosti þrír vopnaðir menn eru á flótta eftir að hafa tekið átján manns í gíslingu í fataversluninni Primark, skammt frá höfuðborginni París.
Samkvæmt heimildum franska dagblaðsins Le Parisian hefur lögreglan bjargað átján manns úr haldi ræningjanna, en þeirra er enn leitað. Enn fremur segir á vef dagblaðsins að einn ræningjanna sé starfsmaður verslunarinnar og að gíslarnir séu allir starfsmenn verslunarinnar.
Primark verslunin er staðsett í verslunarmiðstöðinni Qwartz í Villeneuve-la-Garenne, norðvestur af höfuðborginni París. Öllum nærliggjandi götum sem og verslunum í verslunarmiðstöðinni hefur verið lokað. Sky News fréttastofan hefur það eftir franska dagblaðinu Le Figaro að starfsmaður verslunarinnar hafi sent sms-skilaboð af vettvangi þar sem fram kom að tveir menn héldu honum í gíslingu. Sérsveit lögreglunnar var í kjölfarið gert viðvart og umkringdi hún verslunarmiðstöðina stuttu síðar. Fólkinu hefur öllu verið bjargað og er það samkvæmt heimildum ómeitt. Ræningjanna er eins og áður hefur komið fram, enn leitað.