Gísla þór blæddi út eftir skot í lærið – rannsókn stendur enn yfir

Gísla Þór Þór­ar­ins­syni blæddi út eft­ir að hann fékk skot í lærið. Hann var skotinn til bana snemma morguns laugardaginn 27. apríl í Mehamn í Noregi. Er Gunnar Jóhann Gunnarsson, hálfbróðir Gísla Þórs, grunaður um að hafa orðið honum að bana. Mbl.is greinir frá.

Frumniður­stöður krufn­ing­ar leiddu dánarorsök Gísla Þórs í ljós og búið er að til­kynna utanríkisráðuneyti Íslands að krufn­ingu sé lokið. Því megi flytja lík Gísla Þórs til Íslands.

Rann­sókn máls­ins stendur þó enn yfir og hefur hún leitt í ljós að Gunnar Jóhann og Almar Smári Ásgeirsson hafi fengið skotvopnið í hend­ur dag­inn sem Gísli Þór var myrt­ur. „Rann­sókn á vopn­inu og ra­f­ræn­um spor­um held­ur áfram. Hvor­ug­ur sak­born­ing­anna var skráður eig­andi skot­vopns. Lög­regla hef­ur á þess­um tíma­punkti eng­ar áþreif­an­leg­ar sann­an­ir fyr­ir því að þeir hafi orðið sér út um vopnið í ein­hverj­um sérstökum til­gangi,“ seg­ir í til­kynn­ingu lög­reglunnar.

Gunnar Jóhann er nú í gæsluvarðhaldi til 28. maí en lögreglan mun fara fram á framlengingu þess þegar sá tími rennur út. Hann var yfirheyrður fyrir viku síðan en ekki er búið að yfirheyra hann öðru sinni. Hefur lög­reglan í Finnmörku yf­ir­heyrt um 50 vitni vegna málsins til þessa.

Almar Smári var upphaflega dæmdur í viku gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að málinu en var sleppt fyrr eftir að hann lá ekki lengur undir grun hjá lögreglu.