Á meðan Gísla Þór Þórarinssyni blæddi út í íbúð sinni í Mehamn í Noregi biðu sjúkraflutningamenn í meira en 50 mínútur fyrir utan. Það stafar af því að þeir höfðu ekki heimild til þess að fara inn í íbúðina fyrr en lögregla kæmi á vettvang. RÚV.is greinir frá.
Þar sem skotvopn koma við sögu í Noregi þurfa sjúkraflutningamenn að bíða eftir að lögregla mætir á svæðið og tryggir vettvang. Í þessu tilfelli ferðaðist lögreglan um hálftíma leið frá Kjøllefjord til Mehamn. Tók það lögregluna um 53 mínútur að komast á vettvang eftir að tilkynning barst og tók það lögreglu nokkrar mínútur að tryggja vettvanginn. Því var um klukkustund liðin frá því að tilkynningin barst og sjúkraflutningamenn gátu loks farið inn í íbúð Gísla Þórs til að hlúa að honum.
Eins og áður segir var það um seinan. Gísli Þór var með lífsmarki þegar lögreglan kom loks á vettvang en endurlífgunartilraunir sjúkraflutningamanna báru ekki árangur og var hann úrskurðaður látinn á staðnum. Gísla Þór blæddi út eftir að hafa verið skotinn í lærið og hefur hálfbróðir hans, Gunnar Jóhann Gunnarsson, játað að hafa orðið honum að bana. Hann segir það ekki hafa verið að ásettu ráði, heldur hafi um hræðilegt slys verið að ræða.
Í samtali við NRK gagnrýnir Ola Yttre, formaður Sambands sjúkraflutningamanna í Noregi, verklagið sem þeir þurfa að fylgja. Hann segir það einkar óþægilegt að þurfa að bíða heimildar til að sinna manneskju með lífshættulega áverka.