Girða fyrir kaupauka með lögum

Þingflokkur Samfylkingarinnar leggur til að eignarhaldsfélaga gömlu bankann falli undir ákvæði laga um fjármálafyrirtæki. Þingflokkurinn leggur til í frumvarpi sem lagt var fram í gær að lögum verði breytt svo að með lagabreytingunni verði hægt að takmarkar bónusgreiðslur eignarhaldsfélaga gömlu bankanna.

Samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki eru fjárhæðir bónusgreiðslna takmarkaðar við 25 prosent af árslaunum starfsmanna.

Í frumvarpini segir að engin rök standi til þess að undanskilja umrædd félög þeim reglum sem gilda um banka og eigendur þeirra. \"Greiðslur hárra bónusa í fjármálakerfinu fyrir hrun leiddu til mikils tjóns fyrir almenning og því ekki að ástæðulausu sem lögum var breytt til að takmarka slíka bónusa. Fyrirætlanir um greiðslur hárra bónusa til fámenns hóps starfsmanna eignarhaldsfélaga gömlu bankanna nú, eru tímaskekkja\"; segir þar enn fremur.

Óvíst er hvenær frumvarpið verður tekið á dagskrá og ef af því verður.