„Ósmekkleg launahækkun forstjóra N1 má ekki standa. Mér, sem svo mörgum öðrum, er misboðið. Ég sit í stjórn Lífeyrissjóðsins Gildis og ætla að nota aðstöðu mína sem stjórnarmaður til að krefjast þess að sjóðurinn sendi sterk skilaboð inn á hlutabréfamarkaðinn, með því að selja hlutabréf sjóðsins í N1”, skrifar Guðmundur Ragnarsson, formaður VM og stjórnarmaður í Gildi skrifar.
Guðmundur mun leggja fram formlega tillögu um það á næsta stjórnarfundi Gildis, núna á fimmtudaginn 22. Mars.
Hann bendir á að það séu gerðar siða- og starfskjarareglur en enginn fari eftir þeim. „Ákvörðunin er að baki og stjórn N1 verður að axla sína ábyrgð. Nú er kominn tími til að lífeyrissjóðirnir, sem eru meðal helstu eigenda, láti til sín taka”.
Guðmundur segir að í starfskjarastefnu N1 hf. segi, að kjör forstjóra skuli vera samkeppnishæf og taka mið af hæfni, ábyrgð og umfangi starfans.
„Ég set stórt spurningarmerki við hæfi forstjórans og stjórnar félagsins ef þau eru ekki hæf til að lesa inn í ástandið í samfélaginu. Hvernig fer þetta fólk að því að leggja mat á markaðinn sem fyrirtækið starfar á, ef þau ná ekki að vera í sambandi við samfélagið sem þau búa í.“
Hér er grein Guðmundar í heild.