Gildi, lsr og lífeyrissjóður verzlunarmanna fjárfestu ekki í sjóðum gamma

Þrír af stærstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins fjárfestu ekki í sjóðum gamma en um er að ræða Lífeyr­is­sjóður verzlunarmanna, LSR og Gildi. Þetta kemur fram á Kjarnanum. Þar er vitnað í vefsíðu Gildis en á síðunni segir:

„ ... í ljósi fjöl­miðlaum­fjöll­unar síð­ustu daga um mál­efni Gamma Capital Management og fyr­ir­spurna sem Gildi hafa borist þykir sjóðnum rétt að upp­lýsa að Gildi hefur ekki fjár­fest í sjóðum Gamma.“

Þá óskaði Kjarninn eftir upplýsingum frá LSR og og Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna og líkt og Gildi höfðu þeir ekki fjárfest í neinum sjóðum Gamma. Í frétt Kjarnans segir enn fremur að Tryggingafélagið VÍS hafi sent frá sér aðkomuviðvörun. Margháttaðar ástæður eru fyrir því en þar vegur þyngst að VÍS átti hlutdeildarskírteini í sjóðnum GAMMA: Novus, sem var færður niður í fyrra­dag um millj­­arða króna. Nið­­ur­­færsla VÍS vegna þessa nemur 155 millj­­ónum króna.

Sjá frétt Kjarnans hér.