Gífurleg spilling íslenskra ráðamanna

Stjórn Pírata á Norðausturlandi hefur sent frá sér ályktun vegna afhjúpana um íslenska ráðamenn í Kastljósi og í tugum erlendra fjölmiðla um allan heim.

Kastljósþáttur dagsins sýnir fram á gífurlega spillingu íslenskra stjórnmálamanna, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Í ljós hefur komið að þeir sem talið hafa fólki trú um að þeir væru að vinna af heiðarleika og með hagsmuni almennings fyrir brjósti, hafa vísvitandi logið til um eigur sínar sem þeir földu í aflandsfélögum í erlendum gjaldmiðlum á sama tíma og þeir mærðu íslensku krónuna.\"

Píratar benda á að almenningur hér á landi eigi annað og betra skilið og krefjast róttækra aðgerða: \"Nauðsynlegt er að rjúfa þing og boða til nýrra kosninga, þar sem fólk fær tækifæri til að láta siðspillta stjórnmálamenn taka pokann sinn og kjósa heiðarlegt fólk í stað þeirra. Að því loknu verða stjórnvöld og almenningur að taka á þessari meinsemd sem spillingin er. Píratar munu ekki láta sitt eftir liggja þegar þar að kemur.“